EQ-þerapía er heildræn samtalsmeðferð sem byggir á tilfinningagreind og því að læra að þekkja, skilja og vinna með eigin tilfinningar.
Í meðferðinni færð þú tækifæri til að skoða tilfinningar, reynslu og lífsmynstur sem kunna að hafa áhrif á líðan þína og samskipti við aðra. Sérstök áhersla er lögð á að mæta erfiðum tilfinningum af mildi og skilningi, meðal annars þeim sem eiga rætur í fyrri lífsreynslu og áföllum.
EQ-þerapía getur hentað þér sem glímir við streitu, óöryggi, erfiðar tilfinningar eða áskoranir í samskiptum. Hún getur einnig verið leið til að efla sjálfsþekkingu, styrkja sjálfsvirðingu og byggja upp heilbrigðari tengsl við þig og aðra.
Í öruggu og hlýlegu umhverfi færð þú rými til að tjá þig, finna þín eigin svör og vinna á þínum hraða.

