Fara í efni
Bóka tíma

Forsíða / Meðferðir / Usui reikiheilun

Usui reikiheilun

Mild og heildræn heilunaraðferð með rætur sínar í Japan.

Usui reikiheilun

Usui Reiki er mild og heildræn heilunaraðferð sem á rætur sínar að rekja til Japans og byggir á hugmyndafræði Mikao Usui. Aðferðin byggir á þeirri trú að lífsorka flæði um okkur og að hægt sé að stuðla að jafnvægi og vellíðan með orkumiðlun.

Í meðferðinni notar meðferðaraðilinn mjúka snertingu eða heldur höndum sínum rétt fyrir ofan líkamann, með það að markmiði að skapa ró, slökun og innra jafnvægi.

Reiki getur höfðað til þín ef þú upplifir streitu, þreytu, innri óróleika eða langar einfaldlega að gefa þér stund til að hvílast og endurnærast.

Meðferðin fer fram í hlýlegu og rólegu umhverfi þar sem þú liggur yfirleitt fullklædd á þægilegum meðferðarbekk. Þú þarft ekkert annað að gera en að slaka á og njóta stundarinnar.

Bóka tíma

Hjá hverjum?

Bryndís Ragnarsdóttir

Usui reiki meistari – Undir stjörnunum

Bóka