Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð (CranioSacral Therapy) er mild og nærgætin meðferð sem byggir á aðferðum Dr. John Upledger. Með léttri snertingu er unnið með bandvef og þau svæði líkamans sem tengjast höfuðbeina- og spjaldhryggjarkerfinu, með það að markmiði að draga úr spennu og stuðla að slökun og vellíðan.
Meðferðin getur hentað þér sem upplifir streitu, líkamlega spennu, þreytu eða langar einfaldlega að gefa þér tíma til að hlúa að líkama og huga.
Í meðferðinni liggur þú yfirleitt fullklædd á þægilegum meðferðarbekk á meðan meðferðaraðilinn vinnur með mjúkri og nærgætinni snertingu. Meðferðin er löguð að þínum þörfum og líðan hverju sinni.
Bóka tíma



