
Katrín Kristófers
Tveir mánar
Advanced höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðili, tíðnitæknir og ICC-kennari hjá Rayonex Foundation
Kyrrð Heilsusetur · Álfabakka 14 · Reykjavík
Við höfum skapað hlýlegt og rólegt umhverfi þar sem þú getur verið þú, án væntinga eða pressu. Undir sama þaki starfa meðferðaraðilar með fjölbreytta þekkingu, reynslu og nálgun.

Velkomin
Lífið getur verið fallegt, krefjandi og allt þar á milli. Stundum líður okkur vel og við viljum viðhalda því jafnvægi. Á öðrum tímum finnum við að líkaminn eða hugurinn kallar á meiri athygli, hvíld og umhyggju.
Hjá Kyrrð trúum við því að hver manneskja eigi skilið að láta sér líða vel, óháð því hvar hún er stödd í lífinu. Hvort sem þú glímir við langvarandi verki, þreytu, streitu eða aðrar áskoranir, eða langar einfaldlega að gefa þér notalega stund, þá er Kyrrð staður fyrir þig.
Hér gefum við okkur tíma til að hlusta, sýna nærgætni og mæta þér af virðingu og skilningi.
Hér þarftu ekki að vera neitt annað en þú ert.
Meðferðir
Við vitum að engar tvær manneskjur eru eins. Það sem hentar einum þarf ekki endilega að henta öðrum og því leggjum við áherslu á persónulega nálgun og að hlusta á þarfir og óskir hvers og eins.
Samkvæmt kenningum Paul Schmidt með búnaði frá þýska fyrirtækinu Rayonex Biomedical.
Lesa meira →Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð. Mild snerting, djúp slökun og aukin vellíðan.
Lesa meira →Tilfinningavinna og aukin sjálfsþekking. Rými fyrir tilfinningar, skilning og innri styrk.
Lesa meira →Innra jafnvægi, djúp slökun og aukin vellíðan.
Lesa meira →Mild og heildræn heilunaraðferð sem á rætur sínar að rekja til Japans og byggir á hugmyndafræði Mikao Usui.
Lesa meira →Kærleikur, innri friður og jafnvægi.
Lesa meira →Losaðu um spennu, róaðu hugann og gefðu þér rými til að vera þú.
Lesa meira →Þú þarft ekki að bíða eftir því að vera komin að þolmörkum til að gefa þér tíma.
Hafa samband →Meðferðaraðilar & bókanir
Undir sama þaki starfa meðferðaraðilar með fjölbreytta þekkingu, reynslu og nálgun. Hver og einn er með sína eigin bókunarsíðu.

Tveir mánar
Advanced höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðili, tíðnitæknir og ICC-kennari hjá Rayonex Foundation

Lára Sverris
Advanced höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðili, tíðnitæknir og ICC-kennari hjá Rayonex Foundation


Undir stjörnunum
Reiki-meistari, meðferðaraðili og nemi í höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð

Sagan á bakvið Kyrrð
„Okkar ósk er að þegar þú stígur inn um dyrnar hjá okkur finnir þú strax fyrir hlýju og ró.“
Kyrrð varð til af ástríðu fyrir fólki og vellíðan. Í Kyrrð höfum við safnað saman fjölbreyttum hópi meðferðaraðila sem deila áhuga okkar á heildrænni nálgun og persónulegri þjónustu.
Með hlýju, Katrín og Lára
Eigendur og stofnendur
Umboðsaðili á Íslandi
Við erum tíðnitæknar frá Rayonex Biomedical í Þýskalandi og eru Katrín og Lára jafnframt viðurkenndir ICC-kennarar fyrirtækisins.
Hjá Kyrrð bjóðum við upp á tíðnimeðferðir samkvæmt kenningum Paul Schmidt með búnaði frá þýska fyrirtækinu Rayonex Biomedical. Jafnframt erum við umboðsaðilar Rayonex á Íslandi.
Fara á rayonex.isHafa samband
Álfabakka 14, efsta hæð
109 ReykjavíkÁlfabakka megin – gengið inn í stigagang frá bílastæði á milli Augastaðar og Apótekarans.
Bókanir fara fram hjá hverjum meðferðaraðila fyrir sig – sjá meðferðaraðila.