Access Bars er mild og nærgætin snertimeðferð þar sem unnið er með 32 punkta á höfðinu. Samkvæmt hugmyndafræði Access Consciousness tengjast þessir punktar ýmsum þáttum lífsins, svo sem hugsunum, tilfinningum, viðhorfum og lífsmynstrum.
Meðferðin byggir á léttri snertingu við punktana með það að markmiði að stuðla að djúpri slökun, innri ró og aukinni vellíðan.
Access Bars getur höfðað til þín ef þú upplifir streitu, andlegt álag, þreytu eða sífelldan eril í huganum. Hún getur einnig verið notaleg leið til að gefa þér tíma til hvíldar og endurnæringar.
Í meðferðinni liggur þú fullklædd á þægilegum meðferðarbekk á meðan meðferðaraðilinn snertir punktana á höfðinu af mildi og nærgætni. Þú þarft ekkert að gera, aðeins leyfa þér að slaka á og njóta stundarinnar.

