Hjá Kyrrð bjóðum við upp á tíðnimeðferðir samkvæmt kenningum Paul Schmidt með búnaði frá þýska fyrirtækinu Rayonex Biomedical. Jafnframt erum við umboðsaðilar Rayonex á Íslandi.
Tíðnimeðferðir byggja á hugmyndafræði lífómunar (bioresonance), þar sem unnið er með ákveðnar tíðnir með það að markmiði að styðja við jafnvægi og vellíðan.
Einstaklingsmiðuð nálgun
Í upphafi gefum við okkur tíma til að ræða líðan þína, þær áskoranir sem þú stendur frammi fyrir og hverju þú vilt ná fram. Meðferðirnar fara fram í rólegu og notalegu umhverfi þar sem þú færð tækifæri til að slaka á og gefa þér tíma.
Við erum tíðnitæknar frá Rayonex Biomedical í Þýskalandi og eru Katrín og Lára jafnframt viðurkenndir ICC-kennarar fyrirtækisins.
Bóka tíma



