Engla Reikiheilun er mild og heildræn heilunaraðferð sem sameinar hugmyndafræði Reiki og andlega tengingu við engla og kærleiksríka orku þeirra.
Meðferðin byggir á þeirri trú að englaorka geti veitt stuðning við að finna innri ró, losa um tilfinningalega spennu og stuðla að jafnvægi og vellíðan.
Engla Reiki getur höfðað til þín ef þú upplifir streitu, þreytu, tilfinningalegt álag eða langar einfaldlega að gefa þér stund til að tengjast sjálfri þér og finna meiri frið í daglegu lífi.
Í meðferðinni liggur þú yfirleitt fullklædd á þægilegum meðferðarbekk á meðan meðferðaraðilinn vinnur með mjúka snertingu eða heldur höndum sínum rétt fyrir ofan líkamann. Áhersla er lögð á rólegt andrúmsloft, nærgætni og djúpa slökun.

