Fara í efni
Bóka tíma

Forsíða / Meðferðaraðilar / Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Kristín Magdalena Ágústsdóttir

EQ-þerapisti – Leiðin til að elska mig

EQ-þerapía

Lífið hefur kennt mér að leiðin að aukinni vellíðan hefst oft á því að læra að þekkja og skilja sjálfa sig.

Ég hef sjálf gengið í gegnum erfiða tíma, upplifað veikindi, missi og miklar breytingar í lífinu. Sú reynsla varð til þess að ég fór að skoða eigin tilfinningar, áföll og þau mynstur sem höfðu mótað mig í gegnum árin.

Þessi vegferð leiddi mig í nám við EQ Institute í Osló, þar sem ég lauk þriggja ára námi í EQ-þerapíu árið 2024. Ég er einnig menntuð sem leikskólakennari og sérkennari og hef í gegnum störf mín öðlast dýrmæta reynslu af samskiptum, tilfinningum og mikilvægi öruggra tengsla.

Ég starfa undir nafninu Leiðin til að elska mig og legg sérstaka áherslu á að hjálpa fólki að skilja eigin tilfinningar, vinna með fyrri lífsreynslu og byggja upp betri tengsl við sjálft sig.

Í EQ-þerapíu skoðum við meðal annars hvernig upplifanir úr æsku og fyrri áföll geta haft áhrif á líðan okkar, sjálfsmynd og samskipti. Með mildi, nærveru og virðingu færð þú rými til að tengjast eigin tilfinningum og öðlast dýpri skilning á sjálfum þér.

Ég trúi því að þegar við lærum að mæta okkur sjálfum af skilningi og kærleika skapist tækifæri til persónulegs vaxtar og aukinnar innri ró.

„Fyrir mér snýst EQ-þerapía um að finna leiðina til baka að sjálfum sér – að læra að hlusta á eigin tilfinningar, virða eigin þarfir og uppgötva að við eigum öll skilið kærleika, ekki síst frá okkur sjálfum.“

Meðferðir í boði

Leiðin til að elska mig, EQ-þerapía

120 mín · 20.000–24.000 kr.

Verð og tímalengd samkvæmt bókunarsíðu á Noona.